Áskrifendum Disney Plus heldur áfram að fækka

Disney World í Orlando.
Disney World í Orlando. AFP

Áskrifendum bandarísku streymisveitunnar Disney Plus fækkaði á síðasta ársfjórðungi. Um er að ræða annan fjórðunginn í röð þar sem streymisveitan tapar áskrifendum.

Á fyrsta fjórðungi þessa árs fækkaði áskrifendum um tæpt prósent og eru áskrifendur nú 157,8 milljón talsins.

Í febrúar var frá því greint að áskrifendum hefði fækkað um tæplega eitt prósent á fjórða fjórðungi síðasta árs, niður í 161,8 milljónir. Þá kom einnig fram að Disney segði upp 7 þúsund starfsmönnum.

Tekjur Disney 7% minni 

Heildartekjur Disney hafa einnig minnkað. Þær námu um 21,8 milljörðum bandaríkjadala eða um 2,9 billjónum króna.

Tekjur fyrirtækisins námu 23,5 milljörðum banda­ríkja­dala, eða 3,2 billjónum króna, á seinasta ársfjórðungi 2022. Því minnkuðu heildartekjur fyrirtækisins um 7% á milli ársfjórðunga.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK