Ingvar Haraldsson hefur verið ráðinn til Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Þar mun hann gegna starfi samskiptastjóra en hann hefur þegar hafið störf hjá samtökunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SFF.
Ingvar hefur verið aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins frá árinu 2018 og viðskiptablaðamaður á Viðskiptablaðinu, Fréttablaðinu og Vísi frá árinu 2014. Auk þess hefur Ingvar setið í stjórn Blaðamannafélags Íslands undanfarið ár.
Ingvar var í mars síðastliðnum tilnefndur til Blaðamannaverðlauna ársins 2022 í flokki rannsóknarblaðamennsku vegna umfjöllunar um styrktarsjóð og fjármál Sonju de Zorrilla.
Ingvar lauk meistaragráðu í hagsögu frá London School of Economics árið 2017 og er með BA-gráðu í sagnfræði með hagfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands frá árinu 2015. Hann hefur auk þess lokið prófi til verðbréfaréttinda.
Hann starfaði einnig sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík frá 2018-2020 þar sem hann kenndi áfanga um sögu hagfræðikenninga.
„Íslensk fjármálafyrirtæki gegna afar mikilvægu hlutverki í samfélaginu og ég hlakka til að takast á við krefjandi og þýðingarmikil verkefni með aðildarfélögum SFF sem og öflugu og reynslumiklu samstarfsfólki hjá samtökunum,“ segir Ingvar í tilkynningunni.
Innan Samtaka fjármálafyrirtækja eru 25 aðildarfélög en sex starfsmenn eru á skrifstofu samtakanna. Stjórnarformaður er Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.