Kerecis hlýtur Norrænu vaxtarverðlaunin

Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri markaðsmála og vörurstjórnunar, Guðbjörg Þrastardóttir framleiðslustjóri, Klara …
Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri markaðsmála og vörurstjórnunar, Guðbjörg Þrastardóttir framleiðslustjóri, Klara Sveinsdóttir framkvæmdastjóri gæða- og skráningarmála, og Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnandi og forstjóri Kerecis. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska lækningavörufyrirtækið Kerecis hlaut í gær Norrænu vaxtarverðlaunin, The Nordic ScaleUp Awards, sem eru veitt norrænu nýsköpunarfyrirtæki á hverju ari fyrir framúrskarandi árangur og tekjuvöxt.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kerecis, sem er nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í lækningavörum úr þorskroði og fitusýrum. Hjá fyrirtækinu starfa um 500 manns og vörur fyrirtækisins eru framleiddar á Ísafirði.

„Með einstakri tækni og góðum árangri í sölu- og markaðsmálum hefur [Kercesis] alla burði til að skila varanlegum áhrifum fyrir Norrænt atvinnulíf,“ sagði Svein Berg formaður dómnefndar og forstjóri Nordic Innovation, í ræðu sinni við verðlaunaafhendinguna á Grand hótelinu í Stokkhólmi í gærkvöldi.

„Við eigum þennan hraða vöxt að þakka ótrúlega samhentum hópi starfsmanna sem vinna allir sem einn að því að koma sáraroðstækninni okkar og stafrænu lausnunum á framfæri við heilbrigðisstofnanna þannig að þær standi sjúklingum til boða og bæti möguleika þeirra til bættra lífsgæða og lengra lífs,“ sagði Guðmundur Fertram Sigurjónsson við viðtöku verðlaunanna.

Hann nefndi einnig að meginþorri sölutekna fyrirtækisins komi frá bandarískum markaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK