Góð áhrif tilboðsdaga

Fyrirtæki verja oft dágóðum tíma í að undirbúa tilboðsdagana.
Fyrirtæki verja oft dágóðum tíma í að undirbúa tilboðsdagana. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilboðsdagar á borð við svartan föstudag, stafrænan mánudag og dag einhleypra njóta sívaxandi vinsælda hér á landi og eru bæði neytendum og fyrirtækjum til hagsbóta.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í BS-ritgerð viðskiptafræðinemans Íseyjar Rúnarsdóttur Bridde, en ritgerðin er byggð á eigindlegri rannsókn sem hún framkvæmdi. Ísey segir að áhugi á markaðsfræði hafi kveikt áhugann á viðfangsefninu.

Ísey Rúnarsdóttir Bridde.
Ísey Rúnarsdóttir Bridde. Ljósmynd/Aðsend

„Ég hef mikinn áhuga á markaðsfræði og ætlunin var alltaf að skrifa eitthvað tengt því. Þegar tilboðsdagarnir stóðu yfir í nóvember þá ákvað ég að skrifa um þá. Tilboðsdagarnir eru stórt hugtak í markaðsfræðinni en þetta málefni hefur lítið verið rannsakað,“ segir Ísey og bætir við að það hafi komið henni á óvart við rannsóknina hvað rannsóknarviðtölin voru ólík.

„Allir sem ég tók viðtöl við voru stjórnendur í þekktum fyrirtækjum og mörg þessara fyrirtækja voru mjög skipulögð og með allt á hreinu, en aðrir stjórnendur áttu í erfiðleikum með að svara spurningunum og vissu jafnvel ekki hvenær fyrirtækin hófu að hafa þessa daga.“

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í gær.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK