Ilvu var heimilt að auglýsa rýmingarsölu

Verslun Ilvu var á Korputorgi.
Verslun Ilvu var á Korputorgi. mbl.is/Styrmir Kári

Húsgagnaversluninni Ilvu var heimilt að auglýsa útsölu sem rýmingarsölu. Þetta er niðurstaða áfrýjunarnefndar neytendamála, sem fellir þar með úr gildi ákvörðun Neytendastofu.

Telur áfrýjunarnefndin orðalag útsölureglna ekki koma í veg fyrir að hægt sé að kynna rýmingarsölu þegar verslun flytur sig um set. Þá segir í niðurstöðu nefndarinnar að markaðssetning Ilvu hafi verið skýr um að verðlækkun ætti eingöngu við um vörur í verslun á Korputorgi.

Þá féllst nefndin ekki á að Ilvu væri óheimilt að selja vörur sem boðnar voru á lækkuðu verði á rýmingarsölu í Korputorgi á fullu verði í öðrum verslunum.

Vörurnar til í annarri verslun

Í kjölfar ábendinga til Neytendastofu sendi stofnunin bréf til Ilvu í mars á síðasta ári þar sem verslunin var upplýst um kvartanir hefðu borist yfir því að auglýstur hefði verið 30-70% afsláttur og 70-80% afsláttur af öllum vörum verslunarinnar þegar reyndin hefði verið sú að afslátturinn hefði einungis átt við sýningareintök. Var upplýsingaskorturinn talinn í andstöðu við ákvæði laga um viðskiptahætti og markaðssetningu.

Í svari Ilvu til Neytendastofu kom fram að allar þær vörur sem hefðu verið til sölu í umræddri verslun hefðu verið til sölu á þeim afslætti sem auglýstur var. Í einhverjum tilvikum hefðu eingöngu sýnishorn tiltekinna vara verið til sölu, þrátt fyrir að unnt hefði verið að kaupa þær vörur á fullu verði frá vöruhúsi fyrirtækisins eða í verslun Ilvu á Akureyri. Vegna þessa hefði verið tiltekið sérstaklega að útsalan væri eingöngu í verslun fyrirtækisins á Korputorgi.

Bannað að viðhafa umrædda viðskiptahætti

Í bréfi Neytendastofu til Ilvu í júlí á síðasta ári kemur fram að verslunin hefði ekki átt að auglýsa rýmingarsölu. Aðeins megi gera slíkt þegar verslun hætti eða hætti sölu tiltekins vöruflokks. Fyrirkomulagið hafi verið villandi gagnvart neytendum og til þess fallið að hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni þeirra. Bannaði Neytendastofa kæranda að viðhafa umrædda viðskiptahætti.

Ilva kærði ákvörðunina í ágúst og hefur áfrýjunarnefnd fellt úr gildi ákvörðun Neytendastofu, eins og áður kom fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK