María nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs

María Guðjónsdóttir, nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs.
María Guðjónsdóttir, nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs.

María Guðjónsdóttir hefur verið ráðinn nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs. 

Í stöðu lögfræðings hjá Viðskiptaráði mun María m.a. sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn, annast umsagna- og skýrslugerð og taka þátt í málefnastarfi ráðsins ásamt því að halda utan um starfsemi Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands.

Áður starfaði María á vettvangi Stjórnarráðsins, og kemur til Viðskiptaráðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Í starfi sínu innan Stjórnarráðsins hefur hún komið að fjölbreyttum verkefnum m.a. á sviði stefnumótunar og innleiðingar, hjá félags- og barnamálaráðuneytinu, forsætisráðuneytinu og víðar.

Áður starfaði María sem aðstoðarmaður dómara og á lögmannsstofu sem löglærður fulltrúi, en hún er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún tekur við starfinu af Öglu Eir Vilhjálmsdóttur, sem hefur starfað hjá ráðinu síðan 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK