María Rún Hafliðadóttir hefur verið ráðin forstjóri Gleðipinna hf.
Gleðipinnar eiga American Style, Aktu taktu, Hamborgarafabrikkuna og 80% í pizzastaðnum Black Box.
María Rún var áður framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Gleðipinnum en hún hóf störf hjá félaginu árið 2018, að því er fram kemur í tilkynningu.
María er með MS-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og BS-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Wiesbaden í Þýskalandi.