Ingólfur Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fasteigna hjá Íslandshótelum. Ingólfur gegndi áður stöðu framkvæmdastjóra Berjaya Iceland Hotels, hótelstjóra Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut og starfaði um árabil hjá Icelandair Hotels.
Fram kemur í tilkynningu, að Ingólfur komi til liðs við Íslandshótel með mikla reynslu úr hótelgeiranum og sem framkvæmdastjóri fasteigna muni hann taka þátt í framtíðaruppbyggingu félagsins samhliða rekstri fasteigna dótturfélaga Íslandshótela.
Þá hefur Lijing Zhou verið ráðinn sem sérfræðingur í sjálfbærni hjá Íslandshótelum. Fram kemur, að Lijing komi inn á aðalskrifstofu Íslandshótela með mikla reynslu og menntun í sjálfbærni og umhverfisvísindum, en hún hefur stundað nám og starfað í Svíþjóð, Bandaríkjunum, Kína og nú síðast á Íslandi. Lijing hefur tvær meistaragráður, aðra í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands og hina í alþjóðlegri þróun og stjórnun frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Hún hefur fjölþætta starfsreynslu að baki, m.a. við International Fund for Agricultural Development (IFAD) hjá Sameinuðu þjóðunum.
Lijing mun í starfi sínu bera ábyrgð á þróun og innleiðingu sjálfbærni þvert á öll svið Íslandshótela með áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum, stuðla að sjálfbærum starfsháttum og bæta heildarframmistöðu fyrirtækisins á þessu sviði, að því er félagið greinir frá í tilkynningu.