Íslenska hátæknifyrirtækið DTE hefur lokið 1,4 milljarða króna hlutafjáraukningu til áframhaldandi þróunar á tækni sem gerir framleiðslu áls hagkvæmari, öruggari og umhverfisvænni, segir í tilkynningu frá DTE.
Meðal þátttakenda í fjármögnuninni séu Novelis, stærsti endurvinnsluaðili áls í heiminum, vísissjóðurinn Metaplanet, Chrysalix Venture Capital og Brunnur Ventures ásamt sjóð í eigu Evrópska Nýsköpunarráðsins, EIC Fund.
Í tilkynningunni kemur fram að tækni DTE byggir á skynjurum sem greina efnasamsetningu fljótandi málma með laser-litrófsgreiningu. Það komi í staðinn fyrir handvirka sýnatöku við framleiðslustýringu með tilheyrandi töfum við meðhöndlun og úrvinnslu sýnanna á rannsóknastofu, kemur jafnframt fram.
Þetta breyti framleiðslu- og gæðastýringu með rauntímaupplýsingum beint úr framleiðslunni, en DTE vinnur einnig að þróun gervigreindarhugbúnaðar til að setja töluvert magn framleiðslugagna í samhengi fyrir bætta ákvarðanatöku á öllum stigum framleiðslunnar, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Greint var frá því að Novelis skrifaði einnig undir fjögurra ára rammasamning um innleiðingu lausna DTE í framleiðslu Novelis á heimsvísu, en fyrsta innleiðingin standi nú yfir í verksmiðju Novelis í Bandaríkjunum. Þegar þeirri innleiðingu lýkur, stefna Novelis og DTE á útbreiðslu lausna DTE innan allrar samsteypu Novelis, sem rekur 40 álframleiðslur á heimsvísu sem eru birgjar fyrir bíla- og flugvélaframleiðendur ásamt framleiðendur matvælaumbúða.
“Við sjáum fram á að sú tækni sem DTE hefur þróað leyfi okkur að stytta framleiðslutíma í okkar ofnum og muni þar af leiðandi auka framleiðslugetu okkar án þess að auka þurfi orkunotkun samhliða. Við sjáum einnig fram á að með tímanum geti lausnir DTE orðið til þess að við getum aukið hlutfall endurunnins áls í þeim vörum sem við framleiðum,” segir Derek Prichett, Senior VP Corporate Development hjá Novelis.
“Við erum mjög stolt af þessari viðurkenningu á þeim árangri sem við höfum náð og þeim mikilvægu markmiðum sem við stefnum að á næstu misserum. Þessi fjármögnun mun styðja við áframhaldandi þróun og uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs DTE á alþjóðlegum mörkuðum og er því stuðningur Novelis við okkar vegferð að því að bæta öryggi og framleiðni í gríðarstórum iðnaði,” segir Karl Ágúst Matthíasson, framkvæmdastjóri DTE.