Fjárfestingafélagið IREF ehf., sem er í eigu Gunnars Sverris Harðarsonar og Þórarins Arnars Sævarssonar, hefur keypt hlut Hannesar Steindórssonar fasteignasala í fasteignasölunni Lind.
Viðskiptablaðið greindi fyrst frá kaupunum. Hannes stofnaði fasteignasöluna Lind árið 2015 og fór með 40% eignarhald í félaginu.
Aðspurður í samtali við mbl.is segir Gunnar þá ekki sjá fyrir sér að sameina félögin. Þá hafa þeir áður átt hlut í fyrirtækinu er haft eftir honum.
Jafnframt er greint frá því að Hannes muni halda áfram að starfa á fasteignasölunni sem fasteignasali.
Ársreikningur Lindar fasteignasölu fyrir rekstrarárið 2021 er aðgengilegur hjá Fyrirtækjaskrá. Hagnaðist fasteignasalan um 42 milljónir króna það árið, en árið 2020 nam hagnaður 28 milljónum króna.
Fjárfestingafélag Gunnars og Þórarins, IREF ehf., hagnaðist um 452 milljónir árið 2022 og 1,8 milljarða árið 2021. Eignir félagsins voru bókfærðar á 5,3 milljarða króna í árslok 2022 en árið áður 3,7 milljarða árið áður.