Keahótel taka við rekstri Hótel Grímsborga

Hótel Grímsborgir í Grímsnesi verða nú undir hatti Keahótela.
Hótel Grímsborgir í Grímsnesi verða nú undir hatti Keahótela. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Keahótel hafa tekið við rekstri Hótel Grímsborga í Grímsnesi, segir í tilkynningu frá Keahótel.

Samningur þess efnis var undirritaður í dag. Samningurinn er til 20 ára og nær yfir alla starfsemi hótelsins, þ.m.t. veitingastað, funda- og ráðstefnusali og veisluþjónustu, segir í tilkynningunni.

Grímsborgir verða með þessu tíunda hótelið undir hatti Keahótela, sem rekur fyrir hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík og á Siglufirði. Grímsborgir verða í meginatriðum reknar í óbreyttri mynd, þar sem áhersla verður lögð á fjölbreytta þjónustu við ferðamenn og fyrirtæki. Auk gistiaðstöðu fyrir 240 gesti býður Hótel Grímsborgir upp á aðstöðu og þjónustu fyrir hvers kyns fundi og veislur, kynningar, ráðstefnur, hópefli og aðra viðburði.

Framkvæmdir við stækkun hótelsins hafa staðið yfir í vetur og nú eru risin fimm ný hús, með fimm herbergjum hvert, sameiginlegri setustofu og heitum potti. Nýju húsin verða tekin í notkun í sumar, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Mikil tækifæri fólgin í breytingunni

„Við tökum við góðu búi og hlökkum til að vinna með frábæru starfsfólki Hótel Grímsborga, sem hefur náð einstökum árangri á undanförnum árum með góðri þjónustu og aðbúnaði. Það er sérstaklega áhugavert hversu mikil eftirspurn er eftir funda- og vinnuferðaþjónustu frá innlendum og erlendum fyrirtækjum. Við munum leggja aukna áherslu á slíkt, enda eru Grímsborgir stutt frá Reykjavík og henta því vel í vinnutengda þjónustu,“ er haft eftir Páli L. Sigurjónssyni forstjóra Keahótel.

Helga Guðný Margrétar, hótelstjóri á Hótel Grímsborgum, tekur í sama streng og segir mikil tækifæri fólgin í breytingunni. „Það er mikil eftirvænting í okkar hópi og það er gaman verða hluti af einni stærstu hótelkeðju landsins. Við munum bæði læra af öðrum hótelum innan keðjunnar og deila okkar reynslu og þekkingu, til að hámarka ánægju okkar gesta – hvort sem þeir halda hér upp á brúðkaupsafmælið sitt, mæta á vinnufundi eða eru á ferð um Gullna hringinn. Það eru spennandi tímar framundan,“ er haft eftir  Helgu Guðný.

Keahótel Keahótel ehf. reka fyrir níu hótel. Í Reykjavík: Apótek Hótel, Hótel Borg, Sand Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights. Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði og Hótel Katla Vík í Mýrdal.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK