Fara fram á hluthafafund í Íslandsbanka

Lárus Blöndal, formaður Bankasýslu ríkisins og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri.
Lárus Blöndal, formaður Bankasýslu ríkisins og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bankasýsla ríkisins hefur brugðist við sáttargjörð Íslandsbanka og fjármálaeftirlits Seðlabankans, með því að fara fram á að boðað verði til hluthafafundar í Íslandsbanka. Þá lýsir Bankasýslan miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bankasýslunni.

Í tilkynningunni segir enn fremur:

„Bankasýsla ríkisins lýsir yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5% eignarhlut ríkisins í bankanum þann 22. mars 2022 í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands.“

Enn fremur segir að Íslandsbanki hafi með sáttinni gengist við því að hafa gerst brotlegur við ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga og laga um fjármálafyrirtæki og það sé ljóst að misbrestur á fylgni bankans við lög og reglur er til þess fallinn að rýra traust almennings til fjármálafyrirtækja.

Bankasýslan líti málið alvarlegum augum, þar sem stofnunin fari enn með 42,5 % eignarhlut í Íslandsbanka og verulega hagsmuni ríkisins í öðrum fjármálafyrirtækjum.

Íslandsbanki
Íslandsbanki Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK