Rótgróni vatnsdrykkurinn Toppur mun framvegis kallast Bonaqua. Í tilkynningu frá framleiðanda drykkjarins, Coca-Cola European Partners á Íslandi, segir að engin breyting verði á bragði hans eða bragðtegundum á markaði.
Þá segir að nafnabreytingin sé liður í stefnu alþjóðlegu Coca-Cola-samsteypunnar, eiganda vörumerkisins, um að leggja áherslu á færri en sterkari vörumerki á alþjóðavísu.
Drykkurinn verður áfram framleiddur í plastflöskum í Reykjavík í 100% endurunnu plasti, eins og segir í tilkynningu.
Haft er eftir Önnu Regínu Björnsdóttur, forstjóra Coca-Cola á Íslandi, í tilkynningunni að Bonaqua sé eitt af stærstu vörumerkjum Coca-Cola á heimsvísu í vatnsdrykkjum og fáist á 30 markaðssvæðum.
Þannig sé breytingin mjög spennandi og að íslenskir neytendur megi búast við fleiri nýjungum, eins og nágrannaþjóðir okkar eigi að venjast.