Agnar Tómas Möller, Anna Þórðardóttir, Frosti Ólafsson, Haukur Örn Birgisson, Linda Jónsdóttir, Stefán Pétursson og Helga Hlín Hákonardóttir voru rétt í þessu kjörin í stjórn Íslandsbanka.
Linda var sjálfkjörin sem stjórnarformaður.
Hluthafafundur Íslandsbanka hófst klukkan ellefu á Grand Hótel Reykjavík í dag. Ellefu voru í framboði til stjórnar. Sjö voru tilnefnd af Bankasýslu ríkisins og tilnefningarnefnd Íslandsbanka.
Finnur Árnason stjórnarformaður, Guðrún Þorgeirsdóttir, varaformaður stjórnar, og Ari Daníelsson stjórnarmaður, gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Herdís Gunnarsdóttir og Páll Grétar Steingrímsson voru sjálfkjörin í varastjórn.