Valdimar Grímsson var þjóðþekktur handboltamaður þegar hann hóf að byggja upp verslunarrekstur. Það gerði hann með kaupum á Lystadún-Snæland og fleiri fyrirtækjum í kjölfarið. Verslanirnar selja nú rúm, gluggatjöld og annan húsbúnað og segist Valdimar finna fyrir hagsveiflunni í rekstri þeirra.
„Salan eykst með fleiri nýbyggingum. Það er klárt mál. Við finnum það til dæmis núna í húsgagnageiranum að það er samdráttur eftir farsóttina,“ segir Valdimar sem er samhliða að selja nýjar íbúðir. Það er hugsanlega einsdæmi hjá húsgagna- og gardínusala á Íslandi.
Frá árinu 2014 hefur Valdimar komið að uppbyggingu íbúða víðs vegar um land í gegnum félögin Húsvirkja og Boxhús. Félögin hafa samtals byggt hundruð íbúða í Reykjavík, á Akranesi og á Akureyri.
Valdimar stofnaði fyrsta fyrirtækið sextán ára og mætti stundum á landsliðsæfingar í pollagalla útötuðum í sýru úr rafgeymum sem lýstu leiði í kirkjugörðum. Vakti það litla hrifningu hjá Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfara.
Valdimar segist í viðtali við ViðskiptaMoggann eiga foreldrum sínum og helstu áhrifavöldum í handknattleik mikið að þakka. Hann hafi erft þann hæfileika frá föður sínum að sjá tækifæri í hverri stöðu. Sá hæfileiki hafi nýst vel þegar hann sá tækifæri í samruna fyrirtækja.
Nánar er rætt við Valdimar í ViðskiptaMogganum í dag.