Hildur Björk nýr forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá VÍS

Hildur Björk Hafsteinsdóttir.
Hildur Björk Hafsteinsdóttir.

Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá VÍS.

Hún hefur víðtæka þekkingu á markaðsmálum og býr yfir umfangsmikilli reynslu sem stjórnandi. Undanfarið ár hefur Hildur starfað sem forstöðumaður hjá ISAVIA þar sem að hún leiddi markaðsmál félagsins og upplifun farþega á Keflavíkurflugvelli, að því er segir í tilkynningu. 

Þar áður starfaði Hildur sem forstöðumaður markaðsmála hjá Símanum. Hún er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og BS-gráðu í sömu grein frá Háskóla Íslands. Á árunum 2018-2022, sat Hildur Björk í stjórn ÍMARK, samtökum íslensks markaðsfólks. Hún hefur einnig kennt markaðsfræði í meistaranámi við Háskóla Íslands. Hildur Björk hefur störf 1. september nk.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK