Ýfingar á milli fjármálaráðherra og seðlabankastjóra eru síður en svo nýjar af nálinni þó þær virðist hafa náð áður óþekktum hæðum með beinskeyttri gagnrýni þess fyrrnefnda á tilraunir Seðlabankans til að ná tökum á verðbólgunni.
Í viðskiptahluta Dagmála fóru blaðamennirnir Hörður Ægisson og Andrés Magnússon yfir málið og forsögu þess ásamt Stefáni Einari Stefánssyni.
Dagmál eru aðgengileg fyrir áskrifendur Morgunblaðsins bæði í mynd og sem hlaðvarp en einnig er hægt að fá aðgang með því að kaupa vikupassa að stafrænni áskrift.