Ræða eingöngu samruna við Reiti

Eik á m.a. skrifstofuhúsnæði í Álfheimum 74 og á Smáratorgi …
Eik á m.a. skrifstofuhúsnæði í Álfheimum 74 og á Smáratorgi 3 og verslunarhúsnæði á Glerártorgi. Kristinn Magnússon

Bjarni Kristján Þorvarðarson formaður stjórnar fasteignafélagsins Eikar áréttar í samtali við Morgunblaðið að einu formlegu sameiningarviðræðurnar sem í gangi eru milli fasteignafélaga í kauphöllinni séu á milli Eikar og Reita, að minnsta kosti hvað Eik viðkemur.

Tilefnið er frétt mbl.is á föstudag þar sem sagt er frá því að ekki væri útilokað að Brimgarðar, stærsti eigandi Eikar, samþykki yfirtökutilboð Regins í Eik.

Í fréttinni er sagt að viðræður standi yfir á milli hluthafahópa félaganna tveggja.

Bjarni Kristján Þorvarðarson formaður stjórnar fasteignafélagsins Eikar.
Bjarni Kristján Þorvarðarson formaður stjórnar fasteignafélagsins Eikar. Eggert Jóhannesson

Einu formlegu viðræðurnar

Reginn gerði sem kunnugt er yfirtökutilboð í Eik um miðjan júní sl. Síðar í sama mánuði greindi Morgunblaðið frá því að Brimgarðar, stærsti hluthafi Eikar, legðist gegn yfirtökutilboðinu.

„Það er ofureðlilegt að Reginn, sem er með yfirtökutilboð í gangi, reyni að vinna að framgangi sinna mála. En einu formlegu viðræðurnar eru á milli Reita og Eikar,“ segir Bjarni.

Lestu meira um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK