Hildur til liðs við Fossa

Hildur Kristmundsdóttir, viðskiptastjóri í eignastýringu Fossa fjárfestingabanka.
Hildur Kristmundsdóttir, viðskiptastjóri í eignastýringu Fossa fjárfestingabanka. Aldís Pálsdóttir

Hildur Kristmundsdóttir hefur gengið til liðs við Fossa fjárfestingabanka sem viðskiptastjóri í eignastýringu bankans.

Hildur starfaði hjá Íslandsbanka frá árinu 1998, fyrst sem ráðgjafi einstaklinga í útibúi bankans í Hafnarfirði en síðar verðbréfafulltrúi í sama útibúi þar til hún tók við sem þjónustustjóri á Suðurlandsbraut. Árið 2005 tók hún við starfi útibússtjóra á Eiðistorgi til 2012 og síðar verkefnastjóri á viðskiptabankasviði í höfuðstöðvum bankans. Þá starfaði hún sem forstöðumaður á einstaklingssviði frá árinu 2017.

Hildur er með Fil.kand í sálfræði frá háskólanum í Lundi, Svíþjóð. Hún er með MBA frá Háskóla Íslands og MSc í alþjóðlegum fjármálum og bankastarfsemi frá háskólanum á Bifröst. Hún hefur einnig lokið námi í verðbréfaviðskiptum.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK