5,4 milljarða fjármögnun

Gísli Herjólfsson, forstjóri og einn stofnanda Controlant.
Gísli Herjólfsson, forstjóri og einn stofnanda Controlant.

Controlant hefur lokið fjármögnun sem tryggir félaginu 40 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar um 5,4 milljörðum kr., frá breska sjóðinum Apax Credit.

Fjármögnunin styrkir Controlant enn frekar á áframhaldandi vaxtarvegferð þess, og styður við vöruþróun og markaðssókn með það að markmiði að umbylta aðfangakeðju lyfja á heimsvísu, að því er félagið segir frá í tilkynningu. 

„Nýsköpun í lyfjageiranum og þróun nýrra lyfja fleytir fram á miklum hraða. Aðfangakeðjur þurfa að halda í við þessa þróun til þess að tryggja að lyf komist örugglega og á sjálfbæran hátt á leiðarenda til neytenda. Í samstarfi við viðskiptavini okkar vinnum við að því að umbylta og útrýma sóun í aðfangakeðju lyfja. Stuðningur Apax Credit mun gera okkur kleift að hraða vöruþróun til þess að styðja enn betur við viðskiptavini okkar og þær margþættu áskoranir sem þeir standa frammi fyrir,“ er haft eftir Gísla Herjólfssyni, forstjóra og einum stofnenda Controlant, í tilkynningunni. 

„Stefna Apax er að veita framúrskarandi fyrirtækjum sveigjanlega fjármögnun, með áherslu á fjórar atvinnugreinar: tækni, þjónustu, heilsu, og vefþjónustu- og verslun. Það er okkur ánægja að tilkynna að við höfum veitt Controlant sérsniðna fjármögnunarlausn sem mun styðja við næsta vaxtarskeið félagsins. Apax mun leggja til samstarfsins þekkingu á atvinnugeiranum ásamt víðtækri reynslu á rekstri til þess að styrkja Controlant og áframhaldandi þróun félagsins á hátækni rauntíma vöktunarlausnum fyrir aðfangakeðju lyfja,“ segir Albert Costa Centena, stjórnandi Apax Credit, í tilkynningunni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK