Erna nýr yfirlögfræðingur hjá Isavia

Erna Hjaltested.
Erna Hjaltested. Ljósmynd/Aðsend

Erna Hjaltested hefur verið ráðin í starf yfirlögfræðings Isavia og tekur við af Karli Alvarssyni sem hefur gegnt starfinu síðan 2014.  

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. 

Erna er með kandídatspróf í lögfræði frá Lagadeild Háskóla Íslands, héraðsdómslögmannsréttindi, meistarapróf (LL.M.) í samanburðarlögfræði frá University of Miami School of Law og alþjóðlega D-vottun í verkefnastjórnun. 

Erna starfaði síðast sem lögmaður hjá embætti ríkislögmanns og þar áður sem lögfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og sem yfirlögfræðingur á skrifstofu EFTA í Brussel. Erna hefur þegar hafið störf hjá Isavia.

Karl mun halda áfram að starfa með félaginu á næstu mánuðum og styðja eftirmann sinn eftir því sem þörf er á, að því er segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK