Seðlabanki Íslands kynnir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og efni Fjármálastöðugleika á fundi sem hefst kl. 9.30 í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri munu gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og efni Fjármálastöðugleika á fundinum.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér fyrir neðan.