Eva Guðrún nýr framkvæmdastjóri Bakkans vöruhótels

Eva Guðrún Torfadóttir.
Eva Guðrún Torfadóttir. Ljósmynd/Aðsend

Eva Guðrún Torfadóttir verkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bakkans og kemur inn í framkvæmdastjórn Festi hf. Eva Guðrún hefur störf í byrjun næsta árs, en hún er sem stendur í fæðingarorlofi.

Eva Guðrún hefur frá árinu 2016 starfað sem umbóta- og rekstrarráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu Implement Consulting Group í Kaupmannahöfn. Mörg hennar verkefna þar hafa snúið að endurbótum á aðfangakeðjum, m.a. endurskipulagningu vöruhúsa og þróun innkaupaferla hjá nokkrum af stærstu fyrirtækjum heims. Fyrir það var hún innkaupa- og birgðastjóri hjá Marorku á árununum 2011 til 2013, að því er segir í tilkynningu. 

Eva Guðrún er með meistaragráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá danska tækniháskólanum DTU og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Bakkinn vöruhótel er vöruhótel samstæðunnar Festi, og er hlutverk þess að sinna vöruhúsaþjónustu og dreifingu. Vöruhús Bakkans eru staðsett í Reykjavík, annars vegar í Skarfagörðum 2 og hins vegar í Klettagörðum 13 og þjónusta m.a. rekstrarfélög Festi; Krónuna, N1 og ELKO, sem og önnur félög.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK