Gagnrýna íslensk stjórnvöld harðlega

Ályktunin ECA var send á bæði Vinnumálastofnun og félags – …
Ályktunin ECA var send á bæði Vinnumálastofnun og félags – og vinnumarkaðsráðuneytið. Ljósmynd/Gunnar Flóvenz

Samtök atvinnuflugmanna í Evrópu (ECA) gagnrýna harðlega vinnubrögð íslenskra stjórnvalda er varða gerviverktöku í flugi.

Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem hefur verið send á bæði Vinnumálastofnun og félags – og vinnumarkaðsráðuneytið, en kveikjan að þessu eru uppsagnir flugmanna Bláfugls árið 2020 og ráðning gerviverktaka í þeirra stað.

Í tilkynningu Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), þar sem greint er frá ályktuninni, segir að þrátt fyrir að uppsagnirnar hafi verið dæmdar ólögmætar af Félagsdómi hafi Bláfugl ekki gert neinar breytingar á sinni starfsemi þessu tengt og hafi íslensk stjórnvöld sömuleiðis brugðist við ítrekuðum umleitunum FÍA um að bregðast við lögbrotunum.

„Atferli Bláfugls, með dyggum stuðningi Samtaka atvinnulífsins og íslenskra stjórnvalda, setur vitaskuld skelfilegt fordæmi fyrir íslenskan vinnumarkað: Fyrirtæki geta nú refsilaust rekið allt kjarasamningsbundið starfsfólk á einu bretti og ráðið gerviverktaka í staðinn,“ er haft eftir Sonju Bjarnadóttur Backman, lögfræðingi Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í tilkynningu félagsins um ályktunina.

Uppfylla ekki skilyrði verktöku

Á fundi ECA, sem haldinn var dagana 26.-27. september á Íslandi, var gerviverktaka meðal flugmanna í brennidepli.

„Ástæðan fyrir staðsetningu fundarins er aðgerðar- og áhugaleysi Vinnumálastofnunar, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, Samgöngustofu og annarra eftirlitsaðila hér á landi varðandi málefnið. Opinberum aðilum var boðið að taka þátt í fundinum en þáðu það ekki,“ er haft eftir Sonju.

„Íslenskir lögfræðingar með sérhæfingu í skatta- og vinnurétti fóru yfir lagaumhverfið hér á landi og það var samdóma álit hópsins að íslensk löggjöf næði vel utan um málið og heimildir og skyldur stjórnvalda væru bæði skýrar og nægar. Farið var yfir skilyrði fyrir verktöku og var það samdóma álit allra bæði af dómafordæmum og löggjöf að flugmenn geta í eðli sínu ekki starfað sem verktakar þar sem þeir uppfylla ekki skilyrði verktöku.“

Erlendar starfsmannaleigur

Í tilkynningu FÍA segir að Bláfugl starfi á grundvelli íslensks flugrekstrarleyfis en leigi flugmenn í gegnum erlendar starfsmannaleigur. 

„Þrátt fyrir að samningar við umrædda flugmenn séu titlaðir sem verktakasamningar eru þeir í raun launþega- samningar og verður því að horfa á þá sem slíka og skrá umrædda leigu sem starfsmannaleigu samkvæmt íslenskum lögum og greiða þeim laun samkvæmt kjarasamningum,“ segir Sonja og segir að ECA muni fylgjast grannt með framvindu mála hér á landi og ræða í framhaldinu næstu mögulegu skref.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK