Haukur og Ingvar opna lögmannsstofu

Haukur Örn Birgisson og Ingvar Smári Birgisson.
Haukur Örn Birgisson og Ingvar Smári Birgisson. Ljósmynd/Aðsend

FIRMA lögmenn hafa tekið til starfa í Reykjavík. Eigendur lögmannsstofunnar eru Haukur Örn Birgisson hrl. og Ingvar Smári Birgisson, lögmaður, en þeir störfuðu áður saman á Íslensku lögfræðistofunni. FIRMA lögmenn veita alhliða lögfræðiþjónustu með sérhæfingu í þjónustu við atvinnulífið.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af lögmannsstörfum við úrlausn flókinna viðfangsefna, bæði innan og utan dómskerfisins. Haukur Örn Birgisson hefur verið með málflutningsréttindi frá 2005 og var nýlega kjörinn í stjórn Íslandsbanka. Haukur hefur umtalsverða reynslu af málflutningi og fjölbreytta reynslu úr stjórnsýslunni en hann sinnir einnig störfum sem formaður úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur. Þá var hann áður formaður endurupptökunefndar frá 2017-2021 og forseti Golfsambands Íslands frá 2013-2021, þar af forseti Evrópska Golfsambandsins frá 2019-2021, segir í tilkynningunni. 

Ingvar Smári hóf fyrst störf hjá Nordik lögfræðiþjónustu árið 2016, sem sérhæfir sig í fyrirtækjarétti, en færði sig svo árið 2019 á Íslensku lögfræðistofuna og hlaut sama ár málflutningsréttindi. Ingvar hóf störf sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra árið 2022 og snýr nú aftur til lögmannsstarfa. Ingvar gegnir einnig varaformennsku í stjórn Ríkisútvarpsins ohf. og matsnefnd eignarnámsbóta. Þá var hann formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna á árunum 2017-2019

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK