Áhöfn flugfélagsins Play er sú besta að mati lesenda bandaríska fjölmiðilsins USA Today. Þetta er niðurstaða atkvæðagreiðslu sem fór fram á vegum USA Today 10Best, og kynnt var í dag, þar sem Play var tilnefnt ásamt þekktustu flugfélögum heimsins.
Segir í tilkynningu frá flugfélaginu að sérfræðingar á vegum USA Today 10Best hafi tilnefnt áhafnir sem síðan voru lagðar fyrir dóm lesenda, sem fengu fjórar vikur til að segja sína skoðun með því að greiða atkvæði með þeirri áhöfn sem þeim þykir bera af. Þar varð áhöfn PLAY hlutskörpust en önnur flugfélög sem voru tilnefnd ásamt Play voru m.a. Virgin Atlantic, Delta Airlines, British Airways og Singapore Airlines.
USA Today er dagblað sem gefið er út á prent og stafrænu formi. Fjölmiðillinn nær til 68 milljóna lesenda í mánuði hverjum sem gerir USA Today að einum af stærstu fjölmiðlum Bandaríkjanna, að því er segir í tilkynningu frá flugfélaginu.
Haft er á eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play, að það sé stórkostlegur heiður að vera valin besta áhöfnin úr þessum fríða hópi sem var tilnefndur. Um sé að ræða afrek sem flugfélagið sé ákaflega stolt af.
„Þetta er afrakstur þeirrar fagmennsku sem flugliðarnir okkar stunda á degi hverjum í háloftunum. Það eru ekki nema tvö ár síðan Play fór í sitt fyrsta farþegaflug og að vera komin á þann stað að hljóta tilnefningu með þessum stóru félögum er glæsilegur árangur. Að niðurstaðan sé sú að við stöndum uppi sem sigurvegarar í þeim hópi er magnað afrek sem hvetur okkur til dáða til að halda áfram því frábæra starfi sem Play hefur skilað,“ er haft á eftir Birgi í tilkynningunni.