Öll útibú Landsbankans lokuð á morgun

Búast má við mikilli röskun á tannhjólum atvinnulífsins á morgun …
Búast má við mikilli röskun á tannhjólum atvinnulífsins á morgun vegna verkfalls kvenna og kvára í tilefni kvennafrídagsins. Ljósmynd/Aðsend

Útibú og afgreiðslur Landsbankans verða lokuð á morgun sökum kvennaverkfallsins. 

81% starfsfólks í útibúum Landsbankans eru konur og munu margar þeirra taka þátt í kvennaverkfallinu á morgun, segir í tilkynningu frá bankanum.

Landsbankinn minnir þó á að þjónustuverið verði opið sem og netspjallið, en búast megi við bið eftir þjónustu vegna fáliðunar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK