Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund með Seðlabanka Íslands þar sem fjallað er um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.
Fundurinn hófst kl. 8:30.
Fundarefnið er skýrsla peningastefnunefndar bankans til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2023.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sitja fyrir svörum á fundinum.