Fimm nýir starfsmenn til Maven

Starfsmennirnir nýráðnu.
Starfsmennirnir nýráðnu. Ljósmynd/Aðsend

Maven, þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki í upplýsingatækni, hefur ráðið til sín fimm nýja starfsmenn til að styrkja fyrirtækið í þeim nýju verkefnum sem fram undan eru.

Þau eru Sigrún Inga Ólafsdóttir, Darri Rafn Hólmarsson og Einar Þór Gunnlaugsson sem öll eru gagnasérfræðingar; Ragnar Stefánsson, sem er sérfræðingur í gagnavísindum og Erna Guðrún Stefánsdóttir, sem er nýr mannauðs- og skrifstofustjóri Maven.

„Við erum hæstánægð með að geta boðið þennan öfluga hóp af sérfræðingum velkominn til starfa til okkar,“ segir Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdastjóri Maven, í tilkynningu.

„Stjórnendur og fólk almennt eru farin að gera sér grein fyrir mikilvægi og virði gagna til að mynda í gervigreind og vélnámi (e. Machine learning), þar sem sjálfvirknivæðing og skýjalausnir gera fyrirtækjum kleift að nýta gögn betur án mikillar fjárfestingar eða skuldbindingar. Við sjáum mikla eftirspurn eftir þjónustu okkar, sem felst einna helst í því að hjálpa fyrirtækjum af öllum tegundum, stærðum og gerðum að greina og móta gögn þeirra með framsæknum hætti sem skapar virði fyrir þá og þeirra viðskiptavini. Það er okkur því mikils virði að fá þetta reynslumikla fólk til okkar,” segir hann einnig.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK