Pósturinn og vefsíðan 1111.is sameina krafta sína fyrir tilboðsdag einhleypra (e. singles day), sem er haldinn 11. nóvember.
Vefurinn 1111.is veitir yfirlit yfir fjöldamargar verslanir sem bjóða viðskiptavinum sérstakan afslátt í tilefni dagsins. Það er áhrifavaldurinn og athafnakonan Brynja Dan sem heldur úti síðunni 1111.is en hún var með þeim fyrstu til að kynna daginn fyrir Íslendingum.
„Við erum að gera þetta í níunda skiptið svo það er komin ágætis reynsla á þetta. Þetta er stærsti tilboðsdagur ársins og hefur verið síðastliðin ár. Sömu fyrirtækin skrá sig á vefinn okkar ár eftir ár því 1111.is er oft fyrst stoppið hjá viðskiptavinum þennan dag. En við tökum vel á móti þeim fyrirtækjum sem vilja bætast í hópinn. Þess má geta að það er enn hægt að skrá fyrirtækið á 1111.is,“ er haft eftir Brynju í tilkynningu.
Í tilkynningu segir að pósturinn taki þátt í tilboðsfjörinu eins og undanfarin ár. Pökkum verði dreift hringinn í kringum landið, í póstbox, á pósthús eða alveg heim að dyrum.
„Flestir velja póstboxið í næsta nágrenni því þá getur fólk sótt pakkana sína þegar því hentar. Sumir vilja heldur fá heimsendingu og við verðum á fleygiferð um bæinn þessa daga,“ er haft eftir Vilborgu Ástu Árnadóttur, markaðsstjóra Póstsins.
„Margir gera kjarakaup á degi einhleypra, spara sér sporin með því að versla á netinu og fá svo pakkann í póstboxið í hverfinu. Einhverjir læðast jafnvel út um miðja nótt til að sækja pakkann sem bíður þar þolinmóður eftir eiganda sínum,“ er haft eftir Vilborgu.