Pósturinn hættir fjöldreifingu

Pósturinn hættir að dreifa fjölpósti um næstu áramót.
Pósturinn hættir að dreifa fjölpósti um næstu áramót. mbl.is/Hari

Þann 1. janúar 2024 hættir Pósturinn alfarið að dreifa fjölpósti. Fjöldreifingu var hætt á suðvesturhorni landsins árið 2020 en fjölpósti var hins vegar áfram dreift á landsbyggðinni, einkum þar sem ekki var kostur á öðrum dreifingaraðila. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hætta þeirri dreifingu einnig.  

Þetta kemur fram á vef Póstsins en í gegnum tíðina hefur fjölpósti verið dreift með almennum bréfum en bréfapóstur hefur hins vegar dregist saman um 80% frá árinu 2010 svo samlegðaráhrifin eru ekki lengur til staðar.

Þessi ákvörðun er einnig í takt við umhverfisstefnu Póstsins en við leitum stöðugt leiða til að draga úr sóun og losun koltvísýrings. Svo hefur þeim fækkað verulega sem senda fjölpóst, enda nýta margir sér rafræna miðla til þess að koma upplýsingum og efni á framfæri.

Frá 1. janúar verður eftir sem áður hægt að senda markpóst, t.d.  bæklinga og auglýsingaefni, sem almennt bréf en hann mun þá lúta skilmálum bréfa varðandi verðskrá, dreifingarplan og nafnamerkingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK