Brian Jeffrey Gross hefur verið ráðinn forstjóri fjártæknifyrirtækisins Teya.
Hann var áður meðstofnandi Pineapple Payments í borginni Pittsburgh í Bandaríkjunum, sem og hugbúnaðar- og greiðslulausnarinnar AthleteTrax.
Gross er Bandaríkjamaður, fæddur árið 1991 í Pittsburgh þar sem hann ólst upp en hann hefur verið búsettur hér á landi síðastliðin þrjú ár með fjölskyldu sinni, að því er segir í tilkynningu.
Sambýliskona hans er Hannah Hjördís McVeety. Hún er íslensk, með BA gráðu í grafískri hönnun úr LHÍ og stundar nú nám á textílbraut í Myndlistarskólanum. Saman eiga þau fjögurra ára gamlan strák, Óðinn.
Á Íslandi sat Gross áður í stjórn SalesCloud og Parka þar sem hann situr enn. Þá var hann stjórnarmaður hjá borgarleikhúsinu í Pittsburg auk þess sem hann var sjálfboðaliði hjá stuðningsnetinu Big Brother/Big Sister.