Jarðhræringar hægja á bókunum Icelandair

Dregið hefur úr sölu flugferða Icelandair til Íslands í kjölfar …
Dregið hefur úr sölu flugferða Icelandair til Íslands í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga. mbl.is/Hörður Sveinsson

Dregið hefur úr sölu á flugferðum til Íslands næstu vikurnar í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga.

Í tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í kvöld segir að þrátt fyrir að jarðhræringarnar á Reykjanesi hafi ekki haft áhrif á flugsamgöngur um Keflavíkurflugvöll og flugáætlun Icelandair, hafi hægst verulega á sölu flugferða til Íslands miðað við það sem áður var áætlað. 

Hafi núverandi ástand þess vegna haft neikvæð áhrif á tekjumyndun síðustu vikna ársins þar sem ferðamannamarkaðurinn til Íslands sé mikilvægur þáttur í tekjumyndun félagsins í nóvember og desember.

Afkomuspá felld úr gildi

Fram kemur í tilkynningunni að vegna þessarar stöðu hafi sú afkomuspá sem birt var 13. september síðastliðinn verið felld úr gildi og verði ekki hægt að birta nákvæma afkomuspá fyrir árið í heild á meðan óvissa ríkir um þróun mála á Reykjanesskaga. 

Þrátt fyrir að dregið hafi úr sölu flugferða til landsins, gerir Icelandair þó enn ráð fyrir því að skila jákvæðri afkomu eftir skatta á árinu 2023. 

„Við höfum verið leiðandi flugfélag á Íslandi í áratugi og höfum mikla reynslu af því að takast á við náttúruöflin og höfum undirbúið okkur vel fyrir mismunandi sviðsmyndir. Við erum í góðu samstarfi við yfirvöld og vísindafólk sem fylgist náið með stöðunni og ef til breytinga kemur á flugáætlun munum við upplýsa farþega með okkar venjulegu samskiptaleiðum,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK