Katrín Aagestad Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Heimkaupum. Hún kemur þangað frá Nova þar sem hún starfaði sem markaðsstjóri frá árinu 2021 en hafði starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2019.
Áður starfaði hún við kvikmyndagerð hjá Pegasus og kom meðal annars að verkefnum fyrir HBO og Netflix. Þá starfaði Katrín einnig við grafíska miðlun í Kaupmannahöfn hjá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Phillips ásamt því að starfa við fjölbreytt verkefni í vörumerkjahönnun, að því er segir í tilkynningu.
Hún lauk AP-gráðu í margmiðlunarhönnun við Copenhagen School of Design and Technology árið 2016 og einnig BA-gráðu í vörumerkjahönnun við sama skóla árið 2018.
„Við hjá Heimkaupum erum afar ánægð að fá Katrínu til að leiða markaðsmálin hjá samstæðunni. Reynsla og þekking Katrínar af innlendum og erlendum markaði mun styrkja framkvæmdastjórn Heimkaupa enn frekar og fellur einstaklega vel að þeim verkefnum sem fram undan eru hjá okkur,“ segir Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Heimkaupa, í tilkynningunni.
„Ég er mjög stolt að fá tækifæri til að leiða markaðsmálin hjá Heimkaupa-samstæðunni. Það eru spennandi verkefni fram undan og ég hlakka til að taka þátt í uppbyggingu og stefnumótun vörumerkjanna ásamt metnaðarfullu teymi hjá Heimkaupum, “ segir Katrín Aagestad í tilkynningunni.