Líkt og fyrri ár stendur Fossar fjárfestingabanki fyrir Takk deginum á morgun, fimmtudaginn 23. nóvember. Þetta er í níunda sinn sem Takk dagurinn er haldinn. Starfsfólk bankans velur málefni sem stutt er með söfnun á deginum, en í ár rennur afrakstur dagsins til uppbyggingar sérálmu fyrir konur í Krýsuvík og fjölgun meðferðarplássa.
Auk Fossa taka Kauphöllin (Nasdaq Iceland) og uppgjörsfyrirtækið T Plús þátt í Takk deginum með því að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa innan dagsins sem í staðinn renna til söfnunarinnar. Þá gefur auglýsingastofan TVIST vinnu sína sem tengist deginum.
Á síðasta ári söfnuðust 23,9 milljónir króna sem runnu til Píeta samtakanna og árið áður söfnuðust 21,6 milljónir sem runnu til Jafningjaseturs Reykjadals. Samtals hafa safnast um 90 milljónir króna frá því að Fossar stóð fyrst fyrir Takk deginum.
„Viðburðurinn er ávallt tilhlökkunarefni hjá starfsfólki Fossa og það hefur verið gefandi að geta unnið að því í samstarfi við viðskiptavini á ári hverju, að styðja við samtök sem eru að bæta samfélagið okkar á einn eða annan hátt,“ segir Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, í tilkynningu frá bankanum.
Sem fyrr segir rennur afrakstur dagsins til Krýsuvíkursamtakanna. Samtökin starfrækja meðferðarheimilið Krýsuvík og hafa það að markmiði að hjálpa þeim sem ánetjast hafa vímuefnum og af þeim ástæðum misst stjórn á lífi sínu.
„Krýsuvíkursamtökin hafa nýlega gert miklar breytingar á sinni starfsemi og eru að vinna gríðarlega mikilvægt starf fyrir einstaklinga með fíknivanda. Við fögnum tækifærinu til þess að geta lagt samtökunum lið við að bæta þjónustuna enn frekar,“ segir Steingrímur Arnar.
Meðferðin á Krýsuvík hafa verið starfrækt frá árinu 1986 og hefur verið í stöðugri þróun síðan. Þörfin hefur aukist mikið á síðustu árum og biðlistinn langur. Samtökin eru með áform um talsverðar breytingar á húsnæðinu sem gera þeim kleift að fjölga plássum og byggja sérstaka kvennaálmu, en konur og karlar hafa hingað til deilt rými í meðferðinni.
„Við vonumst til þess að geta hjálpað samtökunum við þessar fyrirætlanir að fjölga plássum til þess að konur hafi sitt eigið rými í meðferðinni, en þær koma í meðferð með stærri áfallasögu og flóknari vanda,“ segir Steingrímur.