Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið nýr bakhjarl Gulleggsins til þriggja ára

Guðlaugur Þór Þórðarson og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir eru sammála um …
Guðlaugur Þór Þórðarson og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir eru sammála um mikilvægi nýsköpunar í hringrásarhagkerfinu.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið er nýr bakhjarl Gulleggsins. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak – Icelandic Startups undirrituðu samning til þriggja ára um þátttöku ráðuneytisins sem bakhjarls í Gullegginu. Þetta segir í tilkynningu frá Klak.

Lykilhlutverk nýsköpunar í hringrásarhagkerfinu

„Til að ná markmiðum okkar í umhverfismálum verðum við að nýta okkar helstu auðlind, hugvitið. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leggur upp með að nýsköpun, rannsóknir og þróun leiki lykilhlutverk við umskiptin yfir í hringrásarhagkerfi og aðkoma ráðuneytisins að Gullegginu er liður í að styrkja frumkvöðla til góðra verka,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við undirritunina. 

Mikilvægur hvati fyrir hugmyndasmiði

„Það er mjög ánægjulegt að fá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið inn sem nýjan bakhjarl Gulleggsins. Samstarfið mun án efa auka vitund um mikilvægi hringrásarhagkerfisins hjá keppendum í stærstu frumkvöðlakeppni Íslands. Aðkoma ráðuneytisins mun vera mikilvægur hvati fyrir hugmyndasmiði sem vilja sækja á ný mið og nýta tækifærin sem gefast í keppni eins og Gullegginu. Við hlökkum til samstarfsins,” segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak - Icelandic Startups.

Veitt frumkvöðlum gott veganesti og forskot

Gulleggið, sem haldið hefur verið af Klak – Icelandic Startups í mörg ár, hefur fest sig í sessi sem ein vinsælasta frumkvöðlakeppni á Íslandi og veitt mörgum frumkvöðlum forskot og gott veganesti inn í nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Fjöldi fyrirtækja hefur farið í gegnum Gulleggið og má þar m.a. nefna Controlant, Taktikal, Meniga, PayAnalytics og Atmonia.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK