Merkingar Taco Bell hafa verið teknar niður á stöðunum í Grafarholti og Hafnarfirði. Er það til marks um tímamót skyndibitakeðjunnar hér á landi, sem verður að öllu óbreyttu lokað. Vísir greinir frá.
Taco Bell hefur verið rekið samhliða skyndibitakeðju KFC hér á landi frá árinu 2006. Nú er svo komið að forsvarsmann KFC á alþjóðavísu hafa ákveðið að ekki megi lengur fara samhliða með rekstur skyndibitakeðjanna.
Þetta segir Helgi Vilhjálmsson, sem jafnan er kenndur við Góu, í samtali við Vísi, sem greinir frá.
Helgi hefur rekið KFC hér á landi í rúm fjörutíu ár, en samhliða því hefur hann rekið Taco Bell frá árinu 2006. Í samtali við Vísi segir hann ákvörðunina ekki í sínum höndum. Þó sé verið að skoða málið og því ekki ljóst hvort ákvörðunin sé endanleg.
Hann tekur fram að ákvörðunin hafi ekki verið á hans valdi og að hann hafi ekki verið spurður álits um breytt fyrirkomulag.