Árni ráðinn forstjóri Marels

Árni Sigurðsson, forstjóri Marels.
Árni Sigurðsson, forstjóri Marels. Ljósmynd/Marel

Árni Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri Marels en hann hefur sinnt starfinu tímabundið frá 7. nóvember í kjölfar þess að Árni Oddur Þórðarson lét af störfum sem forstjóri hjá félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu Marels til Kauphallarinnar.

Árni Sigurðsson hefur starfað hjá Marel frá árinu 2014 en í nóvember 2022 tók hann við sem aðstoðarforstjóri og yfirmaður tekjusviða.

Áður starfaði Árni fyrir AGC Partners í London og hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans. Árni er með MBA gráðu frá Harvard Business School og BSc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Tækifærin framundan ekki síður spennandi

„Það er stjórn Marel ánægjuefni að tilkynna um ráðningu Árna Sigurðssonar sem forstjóra Marel, að undangengnu ráðningarferli sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur. Ég hef starfað náið með Árna síðustu ár og fylgst með honum vaxa sem stjórnanda og leiðtoga innan samstæðu Marel, nú síðast í starfi tímabundins forstjóra sem hann hefur leyst farsællega,” er haft eftir Arnari Þór Mássyni, stjórnarformanni Marels, í tilkynningunni.

„Þegar ég hóf störf hjá Marel árið 2014 urðu mér ljós þau stóru tækifæri sem fólust í viðskiptamódeli félagsins og ekki síður þau gríðarlega jákvæðu áhrif sem við getum haft á virðiskeðju matvæla í heiminum,“ er haft eftir Árna.

Kveðst hann virkilega stoltur af árangri félagsins síðasta áratug.

„Tækifærin framundan eru ekki síður spennandi, og ég mun nota tímann vel næstu mánuði til að meta næstu skref í þeim sóknarfærum. Ég tek stoltur við forstjórakeflinu og hlakka til að starfa náið með samstarfsfólki mínu, viðskiptavinum og öðrum hagaðilum til að tryggja áframhaldandi framþróun og verðmætasköpun Marel, sem umbyltir matvælavinnslu í heiminum,” heldur hann áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK