Lára Björg Ágústsdóttir hefur verið ráðin sem vöruflokkstjóri hjá Heimkaupum, segir í tilkynningu til fjölmiðla.
Lára hefur rúmlega 20 ára reynslu á smásölumarkaði. Þá sinnti hún sölu- og kynningamálum fyrir Karl K. Karlsson í þrjú ár og sinnti sambærilegum störfum fyrir Forval í tvö ár. Hún starfaði í átta ár hjá Halldóri Jónssyni við sölu- og kynningarmál og þar áður hjá heildversluninni Terma sem lagerstjóri og við kynningarmál.
Lára kemur til Heimkaupa frá Krónunni þar sem hún starfaði við vörustýringu í þrjú ár.