Fjölga Bæjarins beztu pylsuvögnum á flugvellinum

Nýi pylsuvagn Bæjarins beztu verður í brottfararsal við vegabréfaeftirlitið.
Nýi pylsuvagn Bæjarins beztu verður í brottfararsal við vegabréfaeftirlitið. Ljósmynd/Isavia

Bæjarins beztu pylsur hafa opnað sinn þriðja sölustað á Keflavíkurflugvelli, en hann er í brottfararsal flugvallarins við vegabréfaeftirlitið.

Áður hefur fyrirtækið rekið útibú í verslun 10-11 í komusal flugvallarins síðan árið 2021 og í sumar bættist við pysluvagn á biðsvæði í suðurbyggingu, sem farþegar á leið til Bretlands, Bandaríkjanna og annarra landa utan Schengen fara um.

Í tilkynningu frá Isavia segir að nýi pylsuvagninn verði opnaður í svokölluðu „pop-up“ rými og verður þar til eins árs.

„Við erum ánægð að geta nú aukið framboðið með nýjum vagni í brottfararsal,“ er haft eftir Gunnhildi Erlu Vilbergsdóttur, deildarstjóra verslana og veitinga hjá Isavia.

Staðir Bæjarins beztu í heild eru því orðnir ellefu talsins. Sjö á höfuðborgarsvæðinu og fjórir á Suðurnesjum.

Staðurinn verður í svokölluðu „pop-up“ rými til eins árs.
Staðurinn verður í svokölluðu „pop-up“ rými til eins árs. Ljósmynd/Isavia
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka