Jóhanna framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku

Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku.
Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku. Ljósmynd/Aðsend

Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku. Hún hefur á síðustu misserum leitt útrás hugbúnaðarfyrirtækisins þar í landi.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Dineout. Starf Jóhönnu felst einna helst í því að leiða áframhaldandi vöxt, þróun og sókn á hugbúnaði fyrirtækisins í Danmörku og afla nýrra viðskiptavina á markaðnum, ásamt því að sjá um daglegan rekstur á skrifstofu Dineout þar í landi þar sem nú starfa sex manns.

Jóhanna var áður framkvæmdastjóri stafrænu markaðsstofunnar Kliq í Kaupmannahöfn, þar sem hún kom m.a. að stefnumótunarvinnu Dineout fyrir inngöngu á danskan markað. Auk þess hefur hún reynslu af störfum tengdum markaðsmálum og viðskiptaþróun, m.a. í ferðaiðnaði.

Jóhanna er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst og bakkalárgráðu í alþjóðlegum sölu- og markaðsfræðum með áherslu á stjórnun frá Tækni- og viðskiptaháskólanum í Hróarskeldu. Að auki er hún með bakgrunn í hugbúnaðar- og vefþróun frá IT háskólanum í Kaupmannahöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka