Ragnar hættir og selur hlut sinn í Brandenburg

Ragnar Gunnarsson er einn af stofnendum Brandenburg auglýsingaskrifstofu.
Ragnar Gunnarsson er einn af stofnendum Brandenburg auglýsingaskrifstofu. Haraldur Jónasson/Hari

Ragnar Gunnarsson, einn af eigendum auglýsingastofunnar Brandenburg, hefur ákveðið að selja hlut sinn í stofunni og óskað eftir því að láta af störfum. Ragnar starfaði lengst af sem framkvæmdastjóri stofunnar en hefur undanfarið sinnt viðskiptaþróun og uppbyggingu tengdra félaga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brandenburg.

„Eftir að hafa stofnað Brandenburg, ásamt félögum mínum, fyrir tólf árum síðan og starfað í auglýsingabransanum í yfir 20 ár er kominn tími til að breyta til og takast á við nýjar áskoranir,“ segir Ragnar í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK