Skora á fyrirtæki að halda aftur af verðhækkunum

Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins.
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Samtaka atvinnulífsins samþykkti á fundi sínum í morgun áskorun til aðildarfélaga sinna, annarra fyrirtækja landsins, ríkis og sveitarfélaga um að styðja við sameiginleg samningsmarkmið nýrra kjarasamninga með því að halda aftur af verðhækkunum og launaskriði eins og unnt er.

SA og breiðfylking stéttarfélaga á almenna vinnumarkaðinum hafa tekið höndum saman með það að markmiði að gera langtímakjarasamninga sem auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu, að því er segir í tilkynningu frá stjórn SA.

Enginn geti skorast undan ábyrgð

Mikilvægasta verkefni komandi kjaraviðræðna sé að greiða leið kjarasamninga sem vinni gegn þeirri verðbólgu og því háa vaxtastigi sem komið hafi hart niður á heimilum og fyrirtækjum.

„Til að það markmið náist verða allir aðilar vinnumarkaðarins að leggjast á eitt og getur enginn skorast undan ábyrgð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka