Linda hættir hjá Marel

Linda Jónsdóttir.
Linda Jónsdóttir. Ljósmynd/Marel

Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel og stjórnarformaður Íslandsbanka, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Marel. Staðan verður í kjölfarið lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir einnig að Linda muni vera stjórnendum innan handar til að tryggja örugga samfellu í yfirfærslu verkefna innan félagsins.

Linda hefur samkvæmt tilkynningunni starfað hjá Marel frá árinu 2009, fyrst sem yfirmaður fjárstýringar og fjárfestatengsla þar til hún tók við starfi fjármálastjóra árið 2014 og hefur verið í núverandi starfi frá árinu 2022.

Í tilkynningunni þakkar Árni Sigurðsson forstjóri Marel Lindu fyrir framlag hennar. „Ég vil þakka Lindu Jónsdóttur kærlega fyrir hennar mikilvæga framlag á fimmtán ára ferli sínum hjá Marel. Linda hefur verið lykilmanneskja í framkvæmdastjórn félagsins og átt mikilvægan þátt í vexti og framþróun félagsins undanfarin ár. Við hjá Marel óskum henni alls hins besta og farsældar í hennar framtíðarverkefnum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka