Lilja Björk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.
„Lilja Björk hefur frá árinu 2021 starfað hjá Samtökum iðnaðarins sem viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði þar sem hún hefur meðal annars haft umsjón með fjölmörgum starfsgreinahópum innan samtakanna.“
Þá kemur fram í tilkynningunni að Lilja Björk sé með BA- og ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og LL.M.-gráðu í evrópskum stjórnskipunarrétti frá Háskólanum í Granada auk þess sem hún hefur málflutningsréttindi fyrir Héraðsdómi. „Áður en hún kom til starfa hjá Samtökum iðnaðarins starfaði Lilja Björk hjá Rauða krossinum sem lögfræðingur og teymisstjóri í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd.“