Vilja sameina Samkaup og dótturfélög SKEL

Heimkaup reka 7 apótek undir merkjum Lyfjavals og níu þægindaverslanir …
Heimkaup reka 7 apótek undir merkjum Lyfjavals og níu þægindaverslanir undir merkjum 10-11, Extra og Orkunnar, auk annarra eigna.

SKEL fjárfestingafélag og Samkaup hafa undirritað yfirlýsingu um að hefja könnunarviðræður vegna mögulegs samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í samstæðu SKEL, þ.e. Orkunnar og Heimkaupa.

Í tilkynningu frá SKEL til Kauphallarinnar kemur fram að félagið telji að með sameiningu ofangreindra félaga verði til fjárhagslega sterkt fyrirtæki með ákjósanlega samsetningu tekna og sterka markaðshlutdeild á lykilmörkuðum með nauðsynjavöru, s.s. matvöru, eldsneyti og lyfjasölu.

„Sameinað félag væri vel í stakk búið til að fjárfesta og styrkja sína stöðu í þeirri hörðu samkeppni sem ríkir á smásölumarkaði,“ segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að Orkan sé með sterka markaðshlutdeild á eldsneytismarkaði og Löður með ráðandi hlutdeild á markaði bílaþvotta. Loks sé Lyfjaval lyfjaverslunin sem starfrækir bílalúgur og að. Mikil og vaxandi eftirspurn er eftir þeirri þjónustu.

Gert er ráð fyrir því að niðurstöður könnunarviðræðna aðila liggi fyrir eigi síðar en 22. mars 2024. Ef aðilar verða ásáttir um áframhaldandi viðræður verður undirrituð sérstök viljayfirlýsing um helstu skilmála samruna og formlegar samningaviðræður hafnar.

„SKEL telur mikil og spennandi tækifæri felast í samruna Samkaupa, Orkunnar, Lyfjavals, Löðurs og Heimkaupa. Sameinað félagið yrði fjárhagslega sterkt, með ákjósanlega dreifingu tekna og um 150 útsölustaði víðsvegar um landið. Sameinað félag væri með um 80 milljarða í veltu á ári og hefði alla burði til að nýta sér til fulls þau tækifæri sem eru á smásölumarkaði í dag til hagsbóta fyrir neytendur, starfsfólk og hluthafa. Þá væri sameinað félag áhugaverður fjárfestingarkostur og skráning hlutabréfa sameinaðs félags á Aðalmarkað Nasdaq Iceland ákjósanlegur kostur,“ segir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL, í tilkynningunni.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL.
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL.

Samkaup reka í dag 64 matvöruverslanir víðsvegar um landið undir fjórum vörumerkjum (Samkaup, Nettó, Kjörbúðin og Iceland) sem spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Orkan starfrækir 72 orkustöðvar, 14 þvottastöðvar undir merkjum Löðurs, sex hraðhleðslustöðvar, tvær vetnisstöðvar og eina metanstöð. Þá á félagið 32 fasteignir og lóðir víðs vegar um landið, auk annarra eigna. Heimkaup reka 7 apótek undir merkjum Lyfjavals og níu þægindaverslanir undir merkjum 10-11, Extra og Orkunnar, auk annarra eigna.

Þá telur SKEL að velta Samkaupa geti aukist umtalsvert með verslunareiningum Heimkaupa og mikil samlegðartækifæri séu fólgin í sameiningu eininganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK