Magnús hættir hjá Símanum og framkvæmdastjórum fækkað

Magnús Ragnarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri hjá Símanum.
Magnús Ragnarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri hjá Símanum. mbl.is/​Hari

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu. Hann hefur setið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2014 auk þess að hafa áður starfað hjá fyrrum dótturfélagi Símans Skjánum á árunum 2004-2007. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þá segir að Magnús muni starfa hjá félaginu til mánaðamóta og í framhaldinu verða því innan handar í verkefnum sem snúa að sjónvarpsþjónustu eins og þörf krefur.

Undir sviðið Miðla heyra tæknimál sjónvarpsrekstrar, dagskrárdeild og auglýsingaráðgjöf. Tæknimál munu færast á svið Tækniþróunar sem Logi Karlsson stýrir, en dagskrárdeild og auglýsingaráðgjöf munu færast á skrifstofu forstjóra. Við þessa breytingu fækkar framkvæmdastjórum hjá félaginu úr fimm í fjóra.

Í tilkynningunni er haft eftir Orra Haukssyni, forstjóra Símans, að félagið hafi tryggt sér ráðgjöf Magnúsar í nokkrum þróunarverkefnum á næstunni. 

Magnús hefur verið í forystuhlutverki Símans á sviði íslenskrar miðlunar á undanförnum árum og leitt algera umbyltingu í rekstri sjónvarps okkar. Auk lykilhlutverks hans við umbreytingu og eftirtektarverðum vexti miðla Símans á undanförnum árum hefur Magnús einnig leitt vöruþróun og nýsköpun félagsins á fjölmörgum öðrum sviðum. Það verður mikil eftirsjá að Magnúsi en sem betur fer höfum við tryggt okkur ráðgjöf hans í nokkrum veigamiklum þróunarverkefnum næstu misseri. Fyrir hönd allra Símastarfsmanna óska ég honum alls hins besta í hverju sem hann tekur sér fyrir hendur,“ er haft eftir Orra.

Haft er eftir Magnúsi að hann skilji sáttur við stöðu mála hjá Símanum. „Miðlun hefur vaxið frá því að vera lítil hliðarbúgrein yfir í að verða í árslok stærsta tekjustoð Símans. Ég kveð Símann því með söknuði og þakklæti en einnig tilhlökkun yfir því sem fram undan er,“ er haft eftir honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK