Ómar Svavarsson hefur komist að samkomulagi við stjórn Securitas um starfslok eftir að hafa gegnt starfi forstjóri frá því í júlí 2017. Hann lætur strax af daglegum störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stekki fjárfestingafélagi, meirihlutaeiganda félagsins.
Jóhann Gunnar Jóhannsson fjármálastjóri Securitas tekur við hlutverki forstjóra þar til framtíðar forstjóri hefur verið ráðinn.
Haft er eftir Guðlaugu Kristbjörgu Kristinsdóttur, stjórnarformanni Securitas, að hún þakki Ómari fyrir samstarfi síðustu ár. „Ég vil þakka Ómari fyrir gott samstarf síðustu 7 árin og óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Félagið hefur vaxið og dafnað í hans forstjóratíð og hefur þess á meðal flutt í nýjar höfuðstöðvar og farsællega tekist á við ýmsar áskoranir.“
Ómar hafði frá árinu 2015 gengt starfi framkvæmdastjóra sölu og ráðgjafar hjá Sjóvá. Hann var áður forstjóri Vodafone á árunum 2009-2014 en hann er viðskiptafræðingur Cand Oecon frá Háskóla Íslands.