Skagi er nýtt nafn móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar.
Haraldur Þórðarson forstjóri afhjúpaði nafnið og nýtt lógó félagsins á viðburði með fjárfestum fyrr í dag.
Nafnið má einnig finna í tilkynningu sem send var á Kauphöllina fyrr í dag samhliða boði á aðalfund félagsins. Þar kemur fram að nafnið sé innblásið af „íslenskri náttúru, styrk hennar og samspili við líf fólksins í landinu“ eins og það er orðað.
„Nafn Skaga vísar í stórt nes eða langan höfða og þykir kröftugt en er á sama tíma stutt og hljómfagurt. Hinir ýmsu skagar landsins teygja sig tignarlega frá meginlandinu með fallegu útsýni yfir land og sjó. Tröllaskagi, Skipaskagi, Tindaskagi, Garðskagi og Skagatá - skaga er að finna í öllum landshlutum,“ segir í tilkynningunni.