Orkuveitan hefur ráðið Snorra Þorkelsson í stöðu framkvæmdastjóra fjármála. Snorri kemur til Orkuveitunnar frá Baader á Íslandi og Skaganum 3X en þar áður starfaði hann í rúman áratug sem fjármálastjóri hjá Marel á Íslandi og síðar sem fjármálastjóri fiskiðnaðar hjá Marel. Einnig var Snorri fjármálastjóri Dohop í fjögur ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Þar segir jafnframt að 30 hafi sótt um starfið.
Snorri sem fæddur er árið 1971 útskrifaðist með BSc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005 og MAcc í reikningshaldi og endurskoðun frá sama skóla tveimur árum síðar.